Samþykkti sjálftöku á Alþingi - og nú þetta ?

Þór Sari ,einn af þeim þingmönnum sem samþykkti að veita sjálfum sér ágætis launahækkun .
Á síðasta degi Alþingis samþykktu þingmenn lög nr. 85/2012 um breytingar á þingsköpum .

Og þar stendur meðal annars :

 Með breytingunni er lagt til að í almennum reglum forsætisnefndar um þingfararkostnað megi ákveða að alþingismenn skuli eiga rétt á að fá greiddan ýmsan kostnað, svo sem við kaup á gleraugum eða heyrnartækjum, krabbameinsleit, líkamsrækt o.fl.  Hér er farin sambærileg leið og kjararáð ákvað 19. desember 2006 og fól í sér að embættismenn skyldu eiga rétt á greiðslum úr Styrktarsjóði BHM. Ekki er þó lagt til að stofnaður verði sérstakur fjölskyldu- og styrktarsjóður fyrir alþingismenn heldur fari um rétt alþingismanna í þessum efnum með sambærilegum hætti og um rétt embættismanna. Jafnframt felur þetta ákvæði í sér rétt alþingismanna til fæðingarstyrks eins og á við um embættismenn. Er fyrirhugað að forsætisnefnd setji nánari reglur um hann.

 

 


mbl.is Vilja lögfesta reglu um hámarkslaun verkalýðsforkólfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. október 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband